Vefdagbók
Myndaalbúm
Kveðjur frá gestum
Gullkorn
Dagbók barnsins
Atli Þór
Atli Þór
Elsku Ásta María, Haukur og Sigrún Helga Við hugsum til ykkar á þessum degi og minnumst elsku litla Atla Þórs sem gaf okkur svo mikið þó hann væri stutt hjá okkur. Elsku Ásta og Haukur þið kennduð okkur líka svo ótrúlega mikið á þessum tíma og gerið enn. Það er svo gott og fallegt hvernig þið haldið minningu Atla Þórs sífellt vakandi á svo viðeigandi og lærdómsríkan hátt. Atli þór var einstakur og þið eruð það líka. Sigrún Helga er svo heppin að hafa einmitt komið til ykkar. Gangi ykkur allt sem best. Vonandi hittumst við mikið í sumar þegar við komum og vonandi komist þið líka í heimsókn til okkar áður en langt um líður. Kærar kveðjur og Guð blessi ykkur og minningu Atla Þórs. Vera og fjölskylda Birkeröd
Vera Gudmundsdottir | 0 | 4.5.2010 09:26:32 #
  • Elsku fallegi prins, það er ótrúlegt að hugsa til þess að það eru 6 ár síðan þú fæddist! Ég man svo vel eftir því þegar ég sá þig fyrst, þá varstu 3 vikna. Ég bráðnaði alveg þú varst svo fallegur lítill gullmoli:) Risa knús til þín elsku Alti Þór***
    Þórunn
    |
    10.4.2010 09:36:34
  • Innilegar kveðjur til þín litli prins á afmælisdeginum þínum. Ég er búin að hugsa svo mikið til þín í dag eins og svo oft fallegasti engillinn. Stórt knús til mömmu, pabba og litlu systur.
    Linda Björk
    |
    10.4.2009 15:28:10
  • Elsku Ásta, Haukur og Sigrún Helga Við sendum ykkur innilegar kveðjur á afmælisdegi Atla Þórs elsku frænda. Guð gefi ykkur góðan dag, við hugsum til ykkar. Hittumst vonandi sem allra fyrst. Kærar kveðjur Vera og fjölskylda
    Vera og fjölskylda
    |
    10.4.2009 12:31:03
Ég var að skoða myndir af elsku fallegasta prinsinum. Vildi bara skilja eftir spor. kveðja Þórunn
Þórunn Ágústa Garðarsdóttir | 0 | 8.1.2009 22:12:06 #
  • Þið eruð í hugum okkar í dag, vonandi hefur dagurinn verið góður hjá ykkur. kær kveðja, Eygló og strákarnir
    Eygló, Flóvent og Sigurjón
    |
    4.5.2008 23:19:39
  • Elsku engill, mikið ofsalega er tíminn fljótur að líða. Ég hugsaði mikið til þín, mömmu þinnar og pabba í dag. Mig langaði bara svo að senda ykkur kveðju. Sofðu rótt
    Þórunn Ágústa Garðarsdóttir
    |
    0
    |
    4.5.2008 21:14:07
  • Að hugsa sér að þú hefðir orðið fjögurra ára í dag, fallegasti prinsinn! Kveðja til þín elsku engill og til fjölskyldunnar þinnar. Þú átt alltaf sérstakan stað í hjarta mínu, þú varst fyrsta barnið sem ég var með á Lyngási og ég man svo vel þegar ég sá þig fyrst, þessi augu sem endurspegluðu þá fegurð sem í þér bjó. Og mikið var nú síðasta vikan þín skemmtileg á Lyngásnu, komst í rútunni, töffarinn með sólgleraugun og skelltir þér í göngutúra með okkur og mikið hlógum við þegar við settum þig í pollagallann og hann var orðinn alltof lítill :o) En þú varst bara flottastur og ég á margar góðar minningar af því sem við brölluðum saman, sérstaklega var gaman að liggja með þér í vatnsrúminu í bláa herberginu - það var svo gaman að sjá hvernig þú brást við ljósunum, þér fannst þetta svo notalegt.
    Rakel Brynjólfsdóttir
    |
    0
    |
    10.4.2008 21:06:24
  • Sendi kveðjur til þín Atli Þór minn í tilefni dagsins. Geymi tíman sem við áttum saman í hjarta mínu. Bestu kveðjur Hanna
    Hanna B Hreiðarsdóttir
    |
    0
    |
    10.4.2008 12:44:13
  • Elsku fallegi englaprins... Okkur langaði að senda þér kveðju í tilefni dagins. Að hugsa sér að það séu orðin 4 ár síðan þú fæddist. Það eru þá að verða 4 ár síðan ég sá þig fyrst og þú algjörlega bræddir mig, litli fegurðarprins. Mig langaði ekkert að skila þér þegar ég þurfti að fara:) Hafðu það ávallt sem best engill kveðja Natalía Nótt, mamma og pabbi
    Þórunn Ágústa Garðarsdóttir
    |
    0
    |
    10.4.2008 12:35:53
ég er búin að hugsa svo mikið til þín síðustu daga, gott að geta komið hingað og skoðað myndirnar af þér. Sakna þín ástin mín !
Marta | 0 | 15.2.2008 21:22:34 #
Hæhæ, Við vildum bara kvitta fyrir okkur, við kíkjum stundum í heimsókn hér á síðu þessa fallega drengs:) Vaki Guðs englar yfir þér, Atli Þór. Kær kv.
Heiðdís, Úlfur Númi, Ísak Arnar | 0 | 18.9.2007 18:39:36 #
Elsku fjölskylda Það eru án efa búnir að vera sérstakir dagarnir upp á síðkastið. Ég hugsa oft til þín Atli Þór enda varstu ógleymanlegur karakter og þurftir engin orð til að sanna það. Þín sterka nærvera var ótrúleg og því finnst mér ég svo heppin að hafa fengið að kynnast þér. Ég vona að þið hafið það öll sem best og munið eiga gleðilegt sumar. Bestu kveðjur, Freyja (Kjarrið)
Freyja Haraldsdóttir | 0 | 11.5.2007 09:02:15 #
  • Sendum ykkur, Ásta, Haukur og Sigrún Helga innilegar kveðjur á þessum degi. Það er erfitt að hugsa til þessa dags fyrir ári síðan. Þið eruð hetjur okkar allra. kveðja Drífa
    Drífa, Svanur og dætur
    |
    4.5.2007 11:55:49
  • Ég trúi því varla að það sé liðið ár frá því að þú kvaddir þennan heim litli gullmoli...Mamma þín og pabbi eru búin að vera svo dugleg þó að þau hafi þurft að ganga í gegnum það sem enginn vill lenda í, að missa litla prinsinn sinn frá sér! Hugsaðu vel um þau í dag og gefðu þeim styrk:) Hafðu það ávallt sem best ***
    ÞÓRUNN
    |
    4.5.2007 09:54:41
  • Mig langaði bara að kvitta hérna. Þú ert búinn að vera í huga mér í allan dag litli prins...Það væri ofsalega gaman að fá mynd af legsteininum þínum:) Ég veit ekki hvernær ég kem suður næst og það er svo langt að bíða!!! kveðja Þórunn og co
    ÞÓRUNN
    |
    23.4.2007 11:30:55
  • Elsku engill, við hér á Lyngási hugsuðum til þín á afmælisdaginn þinn :) Ég fór upp í kirkjugarð með blóm til þín daginn eftir og sá þá fallega legsteininn. Án efa einn fallegasti steinn sem ég hef séð og myndin á honum alveg yndisleg. Rakel á Lyngási
    Rakel
    |
    16.4.2007 13:19:33